Bænavika

Bænavika

Alþjóðleg samkirkjuleg bænavika fyrir einingu kirkjunnar er haldin árlega í janúar. Þessa viku sameinast kristið fólk um allan heim í bæn fyrir einingu. Bænavikan er undirbúin af kirkjum sem tilheyra samkirkjulegum samtökum er nefnast Alkirkjuráðið (World Council of Churches) og kaþólsku kirkjunni. Kirkjum á ákveðnu svæði heims er falið að undirbúa efnið og árið 2012 kemur það frá Póllandi þar sem fólk frá ýmsum kirkjudeildum mótmælenda, kaþólskum kirkjum og rétttrúnaðar, unnu að undirbúningi. Þemað er „Sigur Krists umbreytir okkur!“ og kemur úr I. Korintubréfi, 15:51-58 og vísar í sögu Póllands og orðræðu sigurs og ósigurs.

Hvers vegna þetta þema?

Biblíulestrar, bænir og hugleiðingar fyrir árið 2012
Á vefnum er að finna biblíulestra og bænir sem og íhuganir og spurningar sem glíma á mismunandi hátt við það hvaða merkingu þetta þema hefur í lífi kristins fólks og einingu þess í heimi nútímans.

Dagskrá bænaviku
Hér á landi er bænavikan undirbún af samstarfsnefnd kristinna trúfélaga á höfuðborgarsvæðinu og samkirkjulegum hópum á Akureyri og víðar. Bænastundir og samverur eru flesta daga. Einnig verður málþing um samkirkjumál í Seltjarnarneskirkju 24. janúar kl. 16-18.

Dagskrá bænavikunnar 2012 á Höfuðborgarsvæðinu

Dagskrá bænavikunnar 2012  á Akureyri

Dagskrá bænavikunnar 2012 á Reyðarfirði

„Nálægið ykkur Guði og þá mun hann nálgast ykkur.“ (Jak 4.8a)


Comments are closed.