|
Hin árlega fjölskylduferð Óháða verður farin miðvikudaginn 11.ágúst og verður farið í Guðmundarlund þar sem svona vel tókst til í fyrra og voru mjög margir ánægðir.
Guðmundarlundur er mjög fallegur skógræktarreitur í eigu Skógræktar Kópavogs og er hann fyrir ofan nýju hverfin í Kópavogi.
Mæting er kl. 18.00 og eru næg bílastæði þarna.
Grillaðar pylsur verða í boði safnaðarins ásamt drykkjum og svo mun Séra Pétur stjórna fjöldasöng eins og hans er von og vísa til.
Líkt og í fyrra verður farið í leiki á flötinni, skotbolti, blak og fótbolta einnig er tilvalið að skella sér í gönguferð um skóginn eða skoða Hermannsgarð sem er stórglæsilegur reitur með fjölbreyttum fjölærum garðagróðri.
Allir hvattir til að mæta með stórfjölskylduna og skemmta sér í fallegu umhverfi með góðum hópi vina og vandamanna.
Guðmundarlundur er í stuttu máli sagt fyrir ofan Kórahverfið í Kópavogi og er farið upp með hesthúsabyggðinni, stefnið á Kórinn nýja íþróttahúsið en nánari lýsing er hér að neðan og er þið kíkið á neðsta linkinn þá ættuð þið að gera ykkur grein fyrir hvar hann er.
Leiðalýsing: ef farið er upp Breiðholtsbraut er beygt inn Vatnsendahvarf og ekið eftir honum þar til komið er að hringtorgi og keyrt út úr því á þriðju beygju, þá er ekið eftir Vatnsendavegi, haldið áfram eftir honum og í gegnum tvö hringtorg, alltaf út á annari beygju og við þriðja hringtorgið er ekið út til vinstri ,þriðju beygju (sérð stórt glerhýsi þar) og ekið inn Þingmannaleið að fyrra hringtorginu og þar út í annari beygju og áfram að síðara hringtorginu og þar er beygt út á fyrstu beygju og svo strax til hægri þá erum við komin að hesthúsabyggðinni sem heitir Heimsendi og þaðan er ekið áfram eftir hvítum skiltum sem vísa á Guðmundarlund, síðasti hlutinn er á gömlum malarvegi en er bara um 3 mín í akstri. Endilega prentið þetta út og þá getur aðstoðarbílstjórinn lesið þetta upp á leiðinni ;o)
Nánari upplýsingar um Guðmundarlund er hægt að fá á síðu Skógræktarfélags Kópavogs.
http://www.skogkop.net/gudmundarlundur.htm
http://www.skogkop.net/photogallery/Gudmundarlundur-kort.pdf
Myndir frá ferðinni í fyrra má sjá hér á heimasíðunni undir Myndir og þar undir Guðmundarlundur 2009.
Endilega kíkið á og sjáið þvílík skemmtun þetta var.
|