|
Söngur er stór þáttur í messum safnaðirins og leiðir kórinn sönginn. Þá eru sungnir sálmar úr sálmabókinni og önnur kirkjuleg lög. Á kóræfingum eru æfð bæði kirkjuleg og veraldleg lög sem flutt eru í messum eða á öðrum vettvangi.
Á föstudaginn langa 2007 flutti kórinn ásamt kór Kópavogkirkju í báðum kirkjunum Litlu orgelmessuna eftir Joseph Haydn. Kórinn hefur haldið tónleika að vori og eða einu sinni á aðventunni. Það er lagður mikill metnaður í það að söngurinn á aðventukvöldi kirkjunnar sé fjölbreyttur og vel fluttur.
Haustið 2009 tók nýr organisti til starfa. Hann heitir Árni Heiðar Karlsson.
Æfingar eru í kirkjunni á miðvikudögum kl. 19.30. Það er alltaf mjög gaman á kóræfingum og fara allir glaðir heim. Kórfélagar eru tæplega 20 og það er alltaf hægt að bæta við
góðu söngfólki.
Stjórn kórsins skipa:
Helga Hansdóttir, formaður
Anna Sígríður Hjaltadóttir, gjaldkeri
Ferða og skemmtinefnd:
Víglundur Víglundsson
Guðmundur Ásmundsson
Viltu kynna þér kórstarfið, hafðu þá samband við Árna í síma 863 8381
eða á netfangið
Þetta netfang er varið fyrir rusltölvupósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það
|