Skráning á póstlista






Heim
Sunnudagur 23. ágúst kl 20

Guðsþjónusta kl. 20

Næst komandi sunnudagskvöld er kvöldsamvera í kirkjunni, hefðbundin Guðsþjónusta með altarisgöngu og ljúfri tónlist.

Allir eru hjartanlega velkomnir og taktu endilega með gesti.

 
Dagskrá haustmisseris 2009 er tilbúin

Ágætu safnaðarfélagar og aðrir velunnarar safnaðarins.

Vonum að sumarið hafi verið öllum hagstætt og að komandi tímar verði það líka. Dagskráin liggur nú fyrir og hefur verið sett inn undir liðnum "Dagskrá" hér til vinstri á síðunni.

Dagskráin er hefðbundin í alla staði en þó er ein breyting sem við viljum vekja athygli ykkar á en það er fjölskylduferðin sem verður farin að þessu sinni í Guðmundarlund fyrir ofan nýja hverfið í Kópavogi  þann 12. ágúst. Innan tíðar verða settar inn upplýsingar um ferðina ... svo við hvetjum ykkur endilega til að fylgjast með hér á síðunni ... og munið að það eru allir velkomnir og takið endilega með gesti og gangandi. 

Fyrsta samvera í kirkjunni er 9. ágúst, Guðsþjónusta og samvera í kirkjunni á sumarkvöldi - allir velkomnir.

Hlökkum til að sjá ykkur aftur eftir sumarfrí.

Farið á Guðsvegum, með sól í hjarta og bros á vör.

 Guðrún Halla og Ragnar

PS ...  verið er að vinna í því að setja inn myndir úr starfinu undir liðnum "Myndir" hér til vinstri ... fylgist því endilega með og segið okkur hvað ykkur finnst næst þegar þið komið til kirkju.

 
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 Næsta > Endir >>

Úrslit 26 - 30 af 43
Viltu vera með í kirkjukórnum?

Kirkja Óháða safnaðarins
Kirkja Óháða Safnaðarins