Kirkjukórinn

Kór Óháða safnaðarins hefur að skipa góðu og glaðbeittu söngfólki sem kemur saman á miðvikudagskvöldum kl. 19:30 – 22:00 og æfir tónlist, bæði kirkjulega og veraldlega. Kórinn skipar stórt hlutverk í messunum, og spannar allt frá því að vera hátíðarmessur með Hátíðartóni Bjarna Þorsteinssonar upp í að vera Jass – og Þjóðlagamessur með ýmsum jass og dægurlögum við undirleik hljómsveitar. Kórinn syngur auk þess heilmikið a capella, og flutti m.a. Aldasöng Jóns Nordals síðustu páska, auk þess að hafa flutt Litlu orgelmessuna eftir Joseph Haydn, og fjöldan allan af íslenskri kórtónlist. Á stefnuskránni er að vera með veglega jóladagskrá 2011 og fara svo í tónleikaferðalag vorið 2012.

Stjórnandi kórsins frá árinu 2009 er Árni Heiðar Karlsson.

Stjórn kórsins skipa:
Helga Hansdóttir, formaður
Anna Sígríður Hjaltadóttir, gjaldkeri

Skemmtinefnd:
Bjarni Jónsson
Kristinn Þorsteinsson
Elínborg Jónsdóttir

Comments are closed.