Sr. Pétur predikar og þjónar fyrir altari. Messugutti er Petra Jónsdóttir. Kristján Hrannar spilar á Hammond orgelið og leiðir söng og messusvör. Heiðbjört og Markús sjá um barnastarfið. Ólafur Kristjánsson tekur vel á móti öllum. Maul á eftir.
Mánaðarskipt færslusafn fyrir: október 2017
Fjölskylduguðsþjónusta og töfrabrögð 8. október kl. 14:00
Það verður eldmessa í töfrabrögðunum og styrktarkaffi á eftir. Eldklerkurinn, sr. Pétur, þjónar fyrir altari. Messugutti er Petra Jónsdóttir. Félagar úr fjárlaganefnd leiða sönginn, svör og sálma, við undirleik organistans Árna Heiðars Karlssonar. Ólafur Karlsson tekur vel á móti öllum.
Hlaðborð af alls kyns góðgæti á báðum hæðum í kaffinu á eftir til styrktar góðu málefni. 1500 rukkað fyrir alla eldri en 14 ára, 500 kr. fyrir yngri kynslóðina, frítt fyrir allra yngstu börnin. Aðgangur að hlaðborðum ótakmarkaður á meðan eitthvað er til og magamál leyfir. Hlökkum til að eiga stund með ykkur sem flestum.