Dymbilvika og páskar eru á næsta leiti og munum við í kirkju Óháða safnaðarins fagna því hátíðlega að vanda. Við byrjum með fermingaguðsþjónustu á sunnudaginn kemur (14.4.).Á föstudaginn langa er kvöldvaka (19.4) þar sem Hannes Guðrúnarson ætlar að flytja okkur píslasöguna. Morgunmessa er svo á páskadag þar sem við bjóðum upp á brauðbollur og heitt súkkulaði eftir messuna.
Kristján Hrannar kórstjóri og Óháði kórinn bjóða upp á veglegan tónlistarflutning yfir hátíðina í kirkjunni með nýtt og gamalt efni og Hlín Leifsdóttir sópransöngkona flytur okkur Bach á föstudaginn langa og á páskadag.
Hlökkum til að sjá ykkur í Óháðu kirkjunni yfir páskahátíðarnar.
Hér er svo smá fróðleikur um upphaf páskahátíðarinnar.