Óháði söfnuðurinn óskar eftir kirkjuverði í 50% starf. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf um miðjan ágúst eða í byrjun september 2022.
Við leitum að samviskusömum, jákvæðum og þjónustuliprum einstaklingi sem einnig er góður í mannlegum samskiptum. Vinnutími er sveigjanlegur.
Meðal verkefna:
- Dagleg umsjón með kirkju
- Móttaka á fólki
- Dagleg þrif
- Umsjón með eldhúsi og útleigu á kirkju og félagsheimili
Umsóknarfrestur er til 2. ágúst 2022.
Umsóknir sendist á stjorn@ohadi.is