
Séra Pétur þjónar fyrir altari, Gunnar Hrafnsson leikur á kontrabassa sænsku tónlistarmessuna og frumfluttir verða tveir danskir jazzsálmar. Óháði kórinn leiðir svo messusöng. Barnastarf og maul eftir messu, allir velkomnir.
Fjölskylduguðsþjónusta verður sunnudaginn 11. september kl. 14 en öll börn eru velkomin kl. 13:30 þar sem Kristján kórstjóri ætlar að æfa nokkur lög með börnunum til að syngja í messunni.
Séra Pétur þjónar fyrir altari, Óháði kórinn og barnakórinn sjá um tónlistina og Einar Aron verður með töfrabrögð. Eftir messu verður hoppukastali á lóðinni og boðið upp á pylsur og góðgæti.
Hlökkum til að sjá ykkur og endilega fjölmennið með börnin.