Dagskipt færslusafn: 04/09/2024

Fjölskyldumessa og hoppukastali 8. september

Sunnudaginn 8. september kl. 14 verður fjölskyldumessa. Séra Pétur þjónar fyrir altari og Vox gospel sér um sönginn undir stjórn Matthíasar V. Baldurssonar.
Eftir messu verður börnunum boðið að skemmta sér í hoppukastala og allir boðnir í pylsuát. Hlökkum til að sjá ykkur sem flest og sérstaklega börnin.