Sr. Pétur þjónar fyrir altari og fremur einhver töfrabrögð.
Messugutti er Petra Jónsdóttir.
Félagar úr fjárlaganefnd leiða sönginn, svör og sálma, við undirleik Kristjáns Hrannars. Ólafur Karlsson tekur vel á móti öllum.
Hlaðborð af alls kyns góðgæti á báðum hæðum í kaffinu á eftir til styrktar Bjargarsjóði. 1500 rukkað fyrir alla eldri en 14 ára, 500 kr. fyrir yngri kynslóðina, frítt fyrir allra yngstu börnin. Athugið að það verður ekki posi á staðnum. Aðgangur að hlaðborðum ótakmarkaður á meðan eitthvað er til og magamál leyfir. Hlökkum til að eiga stund með ykkur.