Kvöldmessa og íhugunarstund 16. maí kl. 20:00, á annan í hvítasunnu.
Athugið breyttan messudag og tíma.
Prestur sr. Pétur Þorsteinsson. KÓSÍ-kórinn leiðir sálmasöng og messusvör undir stjórn Árna Heiðars Karlssonar.
Sunnudaginn 24. apríl kl. 14:00
Sr. Pétur Þorsteinsson predikar og þjónar fyrir altari. Meðhjálpari, Petra Jónsdóttir. Alexandra Dröfn og Guðrún Agla sjá um barnastarfið. Kór og hljómsveit undir stjórn Matthíasar V. Baldurssonar verða með Dixelandtónlist í messunni. Ólafur Kristjánsson tekur vel á móti öllum.
Minnum á aðalfund safnaðarins sem verður haldinn eftir messuna. Safnaðarfólk er hvatt til að mæta og taka þannig þátt í eflingu safnaðarins.