Greinasafn fyrir flokkinn: Fréttir

Galdramessa og Bjargarkaffi

Sunnudaginn 9. mars kl. 14 verður Galdramessa, séra Pétur þjónar til altaris og sér um töfrabrögð. Vox gospel töfrar fram ljúfa tóna undir stjórn Matthíasar kórstjóra.

Eftir messu verður kaffisala til styrktar Bjargarsjóði, vöfflur og rjómi sem sem enginn lætur fram hjá sér fara.

Ekki verður posi á staðnum en kaffið kostar 2500 fyrir fullorðna, þá er gott að hafa með sér pening.

Abbamessa 23. febrúar

Sunnudaginn 23. febrúar kl. 14 verður Abbamessa, séra Pétur þjónar fyrir altari, Vox gospel sér um tónlistina undir stjórn Matthíasar kórstjóra og Friðrik Karlsson leikur með á gítar.

Hjördís sér um barnastarfið og maulið verður á sínum stað.

Hlökkum til að sjá ykkur, það verður líf og fjör eins og alltaf.