Sr. Pétur Þorsteinsson predikar og þjónar fyrir altari. Messugutti er Petra Jónsdóttir. Árni Heiðar Karlsson spilar og félagar úr Fjárlaganefnd leiða messusöng og svör undir hans stjórn. Guðrún Halla Benjamínsdóttir tekur vel á móti öllum Maul á eftir.
Greinasafn fyrir flokkinn: Fréttir
Fjölskylduferð í Guðmundarlund 22. ágúst kl. 18:00
Miðvikudaginn 22. ágúst, eru allir hvattir til að mæta í Guðmundarlund með stórfjölskylduna og skemmta sér í fallegu umhverfi með góðum hópi vina og vandamanna. Mæting er kl. 18.00 og eru næg bílastæði þarna. Grillaðar pylsur og fleira gotterí verður í boði safnaðarins ásamt drykkjum og séra Pétur mun stjórna fjöldasöng eins og honum einum er lagið. Guðmundarlundur er fyrir ofan Kórahverfið í Kópavogi og er farið upp með hesthúsabyggðinni, stefnið á Kórinn nýja íþróttahúsið en nánari lýsing fæst ef smellt er beint á viðburðinn hér til hægri á síðunni undir liðnum: Á döfinni. Sjá einnig, viðburður á vegg safnaðarins.