Safnaðarstjórn Óháða safnaðirns hefur ákveðið eftirfarandi fyrirkomulag fyrir árið 2022.
Safnaðarheimilið telst 2 salir á efri og neðri hæð safnaðarheimilins áfast við kirkjuna að Háteigsvegi 56. Hver salur tekur 55 manns í sæti (Stólar eru 110 alls).
- Salerni eru niðri
- Færanleg fatahengi, einnig fatahengi í kirkju ef salur er notaður í framhaldi af athöfn
- Heimiliseldhús með ísskáp, bakarofni og eldavél, borðbúnaði, stórri kaffivél, kaffikönnum, kertastjökum, blómavösum og iðnaðar uppþvottavél.
- Snyrtileg borð og stólar (13 borð/9 ferköntuð og 4 kringlótt á hvorri hæð). Stórt veisluborð á eftir hæð og 2 samsett veisluborð á neðri hæð.
- Dúkaleiga er 700 kr á dúk, ekki innifalið í leiguverði. Leiguverð er 40.000 kr fyrir fólk utan safnaðar
Leiguverð er 25.000 kr fyrir safnaðarmeðlimi
Leiguverð er 10.000 kr fyrir litla hópa og smærri fundi
Leiguverð greiðist fyrir athöfn inn á reikning safnaðrins : - Reikningsnúmer: 101 15 630458
- Kennitala: 4902692749
Vinsamlega sendið staðfestingu á kirkja@ohadi.is
Alltaf skal vera umsjónarmaður í hverri útleigu og aðstoðarmanneskja ef gestafjöldi fer yfir 45-50 manns.
- Laun umsjónamanns og aðstoðarmanneskju (ef þarf) er 4500 kr á tímann, lágmark 4 tímar og greiðist á staðnum.
- Umsjónamaður hellir upp á kaffi, þvær borðbúnað, gengur frá í sal og hjálpar til í samráði við leigutaka.
- Athugið að frágangur tekur um 1.5 klukkutíma eftir að gestir eru farnir
Útleiga á kirkju er 70.000 kr aðeins kirkju EKKI safnaðarheimili. Fastir viðskiptavinir (árlegir viðburðir eða oftar) fá 20% afslátt og greiða 56.000 kr.
Upptökubúnaður:
Hægt er að leigja upptökubúnað með tæknimanni 4 tímar eru lágmark og þá greiðast 40.000 kr. fyrir skiptið. Upptökurnar hafa verið nýttar í streymi t.d. í jarðarfarir.
Kirkjuvörður er Bryndís Böðvarsdóttir
kirkja@ohadi.is
Sími: 844 1770